Matti Kallio - Esperanza

Föstudaginn 28.01.2022 er næsta sólóplata finnska tónlistarmannsins Matta Kallio, Murder Street, væntanleg og í aðdraganda útgáfunnar bað Matti okkur hjá Kaiku Sound um að skjóta tónlistarmyndband fyrir fyrsta síngúlinn af plötunni, Esperanza. Tónlistin er stórkostlega fögur og dregur mikinn innblástur frá bæði djasstónlist sem og þjóðlagatónlist heimalands Matta (og okkar hjá Kaiku Sound): Finnlandi. Við mælum eindregið með því að fólk leggist við hlustir.

Tónlistarmyndbandið var að fullu framleitt af Adam Murtomaa hjá Kaiku Sound. Myndbandið var skotið á einum degi í stúdíói Matta, Fireland Studio.

Myndbandið má nálgast hér að neðan og einnig er hægt að finna það á YouTube undir YouTube rásinni Matti Kallio Official.

Previous
Previous

Alfreð Drexler - Drexler’s Lab

Next
Next

Chase Murphy - Tip of the Iceberg