SUNDUR - To the Top [Remix]

 

Við fengum það ótrúlega spennandi verkefni að pródúsera, mixa og mastera remix af laginu To the Top með bandarísk-íslensku hljómsveitinni SUNDUR fyrir nýju Netflixmyndina Night Teeth. SUNDUR samanstendur af plötusnúðnum Illuga Magnússyni, betur þekktum sem DJ Platurn, ásamt söngkonunni Savannah Lancaster.

Remixið var framleitt af Adam Murtomaa og Pétri Gauti Magnússyni sumarið 2021, en kvikmyndin kom út á streymisveitunni Netflix þann 20. október sama ár. Lagið verður aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.

 
Previous
Previous

Chase Murphy - Tip of the Iceberg

Next
Next

Funi Kun - Still Rappin Still Ignorant