Svarti Laxness - Hvaddagera

 

Kaiku Sound fékk þann heiður að sjá um hljóðblöndun, masteringu og framleiðslu tónlistarmyndbands fyrir nýjasta singúl íslenska rapparans Svarta Laxness. Lagið er pródúserað af Alfreði ,,Drexler” og Joakim “REUP”.

Framleiðsla myndbandsins var alfarið í höndum Péturs Gauts og Adams hjá Kaiku Sound. Allt frá handriti, stílíseringu og leikmynd, yfir í tökur og eftirvinnslu. Tökur á myndbandinu stóðu yfir í þrjá daga í sumarbústað í Biskupstungum.

Sjá má myndbandið hér að neðan. Lagið má finna á öllum helstu streymisveitum.

 
Previous
Previous

Einstæð