LAG (feat. Þór Breiðfjörð) - Það verður aldrei bjartara

 

Í dag kom út nýr singúll frá hljómsveitinni LAG, sem samanstendur af Viktori Inga Guðmundssyni og Brimrúnu Birtu. Lagið er skemmtileg harmónía af gleðilegum og kætandi hljóðfæraleik, og ljóðrænt þunglyndislegum texta - hin fullkomni íslenski listamallingur.

Lagið er pródúserað af Viktori Inga Guðmundssyni, með söng frá Þóri Breiðfjörð, básúnuleik frá Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur, flugelspili frá Veigari Margeirssyni og bassaleik frá Þórdísi Claessen.

Lagið var svo hljóðblandað og masterað af Kaiku Sound-feðgunum, Adam og Jan Murtomaa. Einnig var bassaleikurinn tekinn upp hjá okkur.

Laginu er loks dreift af Öldu Music, skreytt þessu fallega artworki eftir íslensku myndlistakonuna Brimrúnu Birtu (@brimrundraws), og hægt er að nálgast lagið á öllum helstu streymisveitum.

 
Previous
Previous

Anne-Mari Kivimäki á Íslandi

Next
Next

Þrot - Trailer