Þáttur 2 - DJ Platurn

Í öðrum þætti af Veistu hver ég er? spjöllum við við Illuga Magnússon, b.þ.s. DJ Platurn (@djplaturn). Illugi er plötusnúður og pródúser sem ólst upp í Kaliforníu og býr þar enn. Illugi hóf feril sinn sem plötusnúður árið 1994, í blóma hip-hop-senunnar í Bandaríkjunum, og spannar ferill hans nú hátt í þrjá áratugi. Illugi hefur spilað út um allan heim og hefur starfað og spilað með stórum nöfnum í bransanum á borð við De La Soul, Quest Love, DJ Premier, MF Doom, Pete Rock, þó fáeinir séu nefndir. Við spjöllum við Illuga um lífið í Kaliforníu, líf plötusnúðsins og hip-hoppið.

Hægt er að nálgast tónlistina hans Illuga hér.

Þáttinn má hlusta á hér að neðan eða á Spotify.

Previous
Previous

Þáttur 3 - Ásdís María Viðarsdóttir

Next
Next

Þáttur 1 - Jan Murtomaa